Tuesday, March 13, 2012

Frábær skemmtun í kvöld á "Bolta & Borgara" kvöldi hjá ÍR

Frábær endir á skemmtilegu kvöldi þar sem strákarnir í meistaraflokk ÍR unnu Fjölni 29:24. ÍR DómaraAkademía (Stjórn og BOGUR) stóð fyrir grill-hitting fyrir leik.
Ekki skemmdi það fyrir stemmingunni að Víkingar sem eru í öðru sæti í deildinni á eftir okkar mönnum töpuðu með einu marki fyrir Stjörnunni í Mýrinni í kvöld, sem þýðir að ÍR er komið með 4 stiga forskot á Víkinga.
Spennan eykst við færumst nær takmarkinu sem er að komast upp í úrvalsdeildina.
Tveir flottir: Gummi Páls og Hemmi sem varði 18 skot í leiknum á móti Fjölni
Sjaldan hefur verið meiri þörf á ykkar stuðningi en nú þegar þrír leikir eftir.
  • Föstudagurinn 16. mars Selfoss kl. 19:30 Selfoss : ÍR
  • Föstudagurinn 23. mars Austurberg kl. 19:30 ÍR : Víkingur
  • Föstudagurinn 30. mars Mýrin kl. 19:30 Stjarnan : ÍR
Myndir frá "Bolta & Borgara" kvöldi

No comments:

Post a Comment